Maritech er öflugt fyrirtæki sem samanstendur af sterkri liðsheild starfsmanna þess. Fyrirtækinu er skipt í fjögur svið sem eru viðskiptasvið, þróunarsvið, sölusvið og sjávarútvegssvið. Flestir starfa við ráðgjöf og þróun hugbúnaðar.
Áhugasamir eru hvattir til að sækja um starf með því að senda umsókn á starf@maritech.is með upplýsingum um náms- og starfsferil.
Umsóknir eru varðveittar í um það bil sex mánuði nema óskað sé eftir öðru. Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. |
 |
________________________________________
Navision forritarar (1. október 2009)
Við leitum að forriturum með reynslu í Microsoft Dynamics NAV. Starfið felst í þróun og innleiðingu á NAV lausnum Maritech.
Við bjóðum:
- Góðan starfsanda og liðsheild
- Sveigjanlegan og fjölskylduvænan vinnutíma
- Góða starfsaðstöðu og góð laun
- Símenntun í starfi og virka endurmenntunarstefnu
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
Ef þetta vekur áhuga þinn þá hvetjum við þig til að hafa samband og kanna málið nánar. Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Helga Hermannsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs, og Hrannar Erlingsson, framkvæmdarstjóri.