25.05.2009
Á Verkbókhaldsdegi Maritech sem haldinn var fyrr á vormánuðum, var kynntur til leiks Verkteningur fyrir Sérfræðiverkbókhald Maritech. Lausnin hefur fengið góðar viðtökur á meðal viðskiptavina okkar sem nýta sér verkbókhald en hún felur í sér aukinn vinnsluhraða sem og aukið úrval af greiningum.
Notendur teningsins eru sérstaklega ánægðir með einfalda virkni hans og þægilegt notendaviðmót en sérfræðingar Maritech lögðu upp með að teningurinn skyldi bæði flýta fyrir og einfalda vinnuna fyrir notendur.
Smelltu hér til þess að sjá einblöðung um Verktening Maritech.
Hafðu samband við söludeild fyrir frekari fyrirspurnir í s.545 3200 eða í gegnum sala@maritech.is
Til baka