Vel heppnaður morgunverðarfundur

23.12.2009

Morgunverðarfundur var haldinn fyrir viðskiptavini Maritech í gær, þriðjudaginn 22. desember, í Veisluturninum Kópavogi, og hefur þátttakan aldrei verið betri.

Rætt var um breytingar á virðisauka- og tekjuskatti sem tekur gildi þann 1. janúar næstkomandi, en lögin voru samþykkt á Alþingi síðdegis á mánudaginn.

Fundurinn var með jólalegu ívafi, veitingar jólalegar og hlaut Bergþóra Fjóla starfsmaður auglýsingastofunnar ENNEMM veglega hátíðarkaffikörfu í vinning í happadrætti.

Að lokum komu Þrjár raddir og Beatur og sungu hugljúf jólalög.

Við viljum þakka frábæra þátttöku og jafnframt benda á að hægt er að nálgast leiðbeiningarnar á rafrænu formi inn á þjónustuvefnum okkar.

Þjónustuvefur Maritech

Endilega kynnið ykkur breytingarnar vel og við bendum á þjónustuborðið 545 3232 okkar er opið alla virka daga frá 9-17, en þar er hægt að fá frekari upplýsingar eða leggja inn pantanir fyrir breytingum.

Gleðileg jól,

Starfsfólk Maritech






Til baka

 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007