03.05.2009
Þann 29.maí 2009 sendi Tollstjórinn í Reykjavík tilkynningu um hækkun aðflutningsgjalda.
Breytingar eru á eftirfarandi gjaldaflokkum og gilda frá og með 29.maí 2009:
C3 - Gjald á gasolíur, þ.m.t. dísel, tollskrárnúmer 2710.1930. Hækkar úr 46,12 kr/lítra í 51,12 kr/lítra.
LB - Vörugjald af bensíni, tollskrárnúmer 2710.1121 og 2710.1129. Hækkar úr 10,44 kr/lítra í 20,44 kr/lítra.
VX - Áfengisgjald hækkar úr 66,04 kr/cl í 75,95 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Öl o.fl.
VY - Áfengisgjald hækkar úr 59,40 kr/cl í 68,31 kr/cl af vínanda umfr. 2,25% - Vín (t.d. léttvín).
VZ - Áfengisgjald hækkar úr 79,63 kr/cl í 91,57 kr/cl af vínanda umfr. 0% - Annað áfengi (sterkt vín) .
Tóbaksgjald á innflutning ferðamanna
T1 - Tóbaksgjald - vindlingar. Hækkar úr 322,84 kr. á hvern pakka; 20 vindl. í 371,27 kr á hvern pakka.
T2 - Tóbaksgjald - annað tóbak. Hækkar úr 16,13 kr/gramm í 18,55 kr/gramm (skrá skal þyngd í grömmum í lítrareit í aðflutningsskýrslu).
Gefin hefur verið út ný útgáfa tollskrárlykla sem finna má á slóðinni: http://www.tollur.is/displayer.asp?cat_id=123
Ef aðstoðar er óskað við að uppfæra tollskrá, vinsamlegast hafið samband við þjónustuborð Maritech í síma 545-3232 eða í tölvupósti á service@maritech.is.
Til baka