Formleg opnun vefsíðu og þjónustusíðu Maritech

27.01.2009

Viðskiptavinir og starfsfólk Maritech hafa svo sannarlega tilefni til að gleðjast þar sem miklar endurbætur hafa orðið á vefsíðu og þjónustuvef fyrirtækisins. Í tilefni þess sláum við til fagnaðar og vonum við að þú sjáir þér fært um að mæta fimmtudaginn 5. febrúar á Nordica hótel í sal H-I og njóta léttra veitinga.

 

Við byrjum fersk á nýju ári og verður mikið um endurbætur og nýjungar. Ásamt því að kynna nýju vefina munu áherslur fyrir árið 2009 vera kynntar fyrir viðskiptavinum.

 

Við vonumst til þess að sjá sem flesta af okkar viðskiptavinum. Smellið hér til að skrá ykkur og samstarfsfélaga, vinsamlegast skráið ykkur í síðasta lagi þriðjudaginn 3.febrúar.

  • Fimmtudagurinn 5. febrúar, kl.16:00-18:00
  • Hilton Reykjavík Nordica, salur H-I
  • Skráning í síðasta lagi 3. febrúar

Við hlökkum til að hitta ykkur,

Starfsfólk Maritech.


Til baka

 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007