02.09.2009
Nú hefur þýsk útgáfa NEMO Stjórnendasýnar litið dagsins ljós en þýskumælandi markaðurinn er einn sá stærsti fyrir Microsoft Dynamics NAV. Sem hluti af þessari mikilvægu útgáfu af NEMO þá hefur verið opnuð þýsk vefsíða fyrir NEMO sem hægt er að nálgast hér.
Kynningarherferð fer í gang í næstu viku en þess má geta að Microsoft Germany Partner Conference verður haldin í næstu viku, 8.-9. september, og verður NEMO kynnt þar fyrir samstarfsaðilum Microsoft Dynamics NAV.
Kristján Auðunsson er sölustjóri NEMO fyrir Mið-Evrópu.
Fljótlega líður að næstu útgáfu NEMO en NEMO 2009 býður upp á fjölmargar nýjungar bæði í eiginleikum sem og gagnabirtingu og verður það kynnt síðar í mánuðinum.
Til baka