19.01.2010
Maritech á Akureyri býður sveitarfélögum á námskeið um launakerfi Maritech miðvikudaginn 20. janúar kl. 13-17.
Námskeiðið er sniðið að þeim sem eru að vinna með launakerfi Maritech í Microsoft Dynamics NAV og veitir góða innsýn inn í þá möguleika sem kerfið hefur upp á að bjóða.
Námskeiðið er kennt af sérfræðingum Maritech sem hafa reynslu í ráðgjöf og þjónustu við Microsoft Dynamics NAV.
Kennt er á Microsoft Dynamics NAV útgáfu 5.0 SP.
Helstu námskeiðsþættir:
- Viðmót og umhverfi Microsoft Dynamics NAV
- Stofnun launþega og starfa
- Stofnun tegunda og stofnun kröfuaðila
- Stofnun og hækkun kjarasamninga og launataxta
- Laun reiknuð og útprentanir á launaseðlum
- Skilagreinar / skýrslur / rafræn skil
- Flýtileiðir og flýtilyklar
- Leit, afmörkun og röðun
- Fastar bækur
- Viðskipti sótt
- Bakfærslur og leiðréttingar
- Tenging við fjárhagsbókhald
Námskeiðið er haldið að Hafnarstræti 102, Akureyri.
Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna undir námskeiðsdagskrá Maritech. Námskeiðsdagskrá
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Eiríksson í síma: 545 3240.
Skráning í síma 545 3200 eða á vef Maritech
Skráning
Hlökkum til að sjá ykkur,
Starfsfólk Maritech
Til baka