09.05.2009
Niðurstöður árlegrar könnunar VR voru birtar síðastliðinn föstudag við hátíðlega athöfn. Í könnuninni er starfsfólk beðið um að meta vinnustað sinn m.t.t. vinnuskilyrða, trúverðugleika stjórnenda, launakjara, sveigjanleika og sjálfstæði í starfi, stolti og ímynd fyrirtækis og síðast en ekki síst starfsanda.
Allir starfsmenn Maritech, óháð stéttarfélagsaðild, höfðu möguleika á að taka þátt í könnuninni, og var svarhlutfall með besta móti, 88%. Maritech lenti í 10.sæti í hópi stærri fyrirtækja og erum við afar stolt af árangrinum. Þess má geta að þetta er í þriðja sinn sem að Maritech fær nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki VR.
VR - Fyrirtæki ársins 2009
Til baka