11.11.2009
Í dag veitti Maritech Fjölskylduhjálp Íslands 250.000 kr styrk þar sem þörfin fyrir aðstoð um hátíðarnar hefur aldrei verið meiri.
Fjölskylduhjálp Íslands hefur verið starfandi síðan 2003 og hjá þeim starfa um 30-40 sjálfboðaliðar. Gert er ráð fyrir að aðstoða yfir 1500 fjölskyldur í desember. Ekki er þörf á að sækja um aðstoðina fyrirfram, heldur er fólk hvatt til að leita til Fjölskylduhjálpar Íslands á úthlutunardögum sem verða þrír í ár, 9., 16., og 21. desember.
Símar Fjölskylduhjálpar Íslands eru 551 3360 og 892 9603.
Einnig er tekið á móti opnum framlögum á reikning 101-26-66090, kt. 660903-2590.
Starfsfólk Maritech óskar landsmönnum öllum gleðilegra jóla.
Til baka