15.05.2009
|
Latibær hefur nú tekið í notkun Samningakerfi Maritech sem mun halda utan um samninga, lykiltölur og árangur gagnvart birtingaraðilum og öðrum viðskiptavinum Latabæjar. Latibær valdi þar með að skipta yfir í Microsoft hugbúnað, Microsoft Dynamics NAV, með Samningakerfi Maritech sem viðbótareiningu.
Microsoft Dynamics NAV er viðskiptahugbúnaður sem er notaður hjá um 70 þúsund fyrirtækjum víðs vegar um heiminn. Hugbúnaðurinn keyrir á MS SQL sem einfaldar og auðveldar alla vinnslu hvort sem um ræðir úttak upplýsinga, grafík eða tölfræðilega úrvinnslu. |

Sigurður Stefánsson, Latabæ, og Jón Heiðar Pálsson,Maritech, við undirritun samnings. |
Samningakerfi Maritech er hannað til utanumhalds á samningum við viðskiptavini, reikningsfærslu samningsgjalda og veitir heildaryfirsýn yfir sögu þeirra. Kerfið er samþætt við fjárhag, sölu og önnur stöðluð kerfi Microsoft Dynamics NAV.
„Við völdum Microsoft Dynamics NAV vegna sveigjanleika kerfisins, öflugs gagnagrunns og úrvinnslu,“ segir Sigurður Stefánsson, fjármálastjóri Latabæjar. „Með nýju Samningakerfi Maritech verður þjónusta okkar við samstarfsaðila mun betri. Kerfið býður upp á mikinn sveigjanleika ásamt því að auðvelda greiningu upplýsinga og upplýsingagjöf til stjórnenda og samstarfsaðila. Það er einnig mikill kostur að kerfið er aðgengilegt í gegnum netið hvar og hvenær sem er. Með Microsoft Dynamics NAV og Samningakerfi Maritech er Latibær kominn með eina samþætta heildarlausn, engar tvískráningar, bara vinnusparnaður og hagræðing.“
Þann 2. júní næstkomandi mun Maritech kynna lausnina á bás Latabæjar á Licensing International Expo, ráðstefnu sem haldin er í Las Vegas, Bandaríkjunum. Ráðstefnan er stærst sinnar tegundar í heiminum og er fyrir alla helstu leyfishafa hugverkaréttinda (hvort sem um ræðir í ljósvakamiðlum, prentmiðlum, listum o.s.frv.) í heiminum í dag.
Til baka