Frábær þátttaka á morgunverðarfundinum

13.10.2009

 

Fyrsti morgunverðarfundur Maritech var haldinn í morgun, 13.október. Vegna mikillar þátttöku var fundurinn færður yfir í Veisluturninn Smáratorgi en yfir fjörtíu manns voru skráðir til leiks og er ánægjulegt að þessi nýjung skuli fá svona góðar viðtökur á meðal viðskiptavina okkar. Morgunverðarfundirnir verða reglulega á dagskrá í vetur og vonumst við til að sjá sem flesta, næsti morgunverðarfundur verður um miðjan nóvember og verður kynntur sérstaklega síðar.

 

Á þessum fyrsta morgunverðarfundi var ný útgáfa af Bankasamskiptakerfinu kynnt en kerfið hafði áður vakið mikla athygli á haustráðstefnunni sem haldin var fyrripart septembermánaðar. Gestir gæddu sér á léttum morgunverði á meðan Fríður Birna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri hjá Maritech, fór yfir virkni og kosti kerfisins.

 

Hér gefur á að líta nokkrar myndir frá morgunverðarfundinum:




Til baka

 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007