Creditinfo með lausnir frá Maritech

11.06.2009

Creditinfo valdi Microsoft Dynamics NAV viðskiptahugbúnaðinn þegar kom að því að skipta út eldra kerfi fyrir nýrra og hentugra kerfi. Það var ánægjulegt að Creditinfo skyldi velja Maritech sem samstarfsaðila og var það sérþekking starfsfólks á samningakerfum og stjórnendalausnum sem skar þar úr um.

 

Um veigamikla innleiðingu var að ræða þar sem sett var upp NAV 5.01 og fjöldi sérlausna Maritech þar sem Samningakerfið vó þyngst. Gerðar voru ýmsar sérbreytingar á Samningakerfinu fyrir Creditinfo og leysir kerfið nú þarfir starfseminnar á mun skilvirkari hátt en áður.

 

Samningakerfi Maritech er hannað til utanumhalds á samningum við viðskiptavini, reikningsfærslu samningsgjalda og veitir heildaryfirsýn yfir sögu þeirra. Kerfið er samþætt við fjárhag, sölu og önnur stöðluð kerfi NAV.

 

Creditinfo er leiðandi fyrirtæki í miðlun fjárhags- og viðskiptaupplýsinga en auk þess býður fyrirtækið upp á fjölbreytta fjölmiðlaþjónustu. Sjá nánar www.creditinfo.is.


Til baka

 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007