26.06.2009
Breyting á launakerfi Maritech vegna breytingar á staðgreiðslu– og tryggingargjaldi þann 1.júlí 2009 Samkvæmt frumvarpi um breytingar á skattalögum, sem nú er til meðferðar á Alþingi, verða tvær breytingar þann 1. júlí sem hafa áhrif á staðgreiðsluskil launagreiðenda.
-
Annars vegar hækkar tryggingagjald 1.júlí, líklega í 7%, og verður hver notandi að breyta hlutfalli tryggingargjalds í staðgreiðslutöflu í stofngögnum.
-
Hins vegar er lagt til að leggja 8% viðbótarskatt á mánaðarlaun umfram 700.000 kr. frá og með 1. júlí 2009. Nýja skattþrepið krefst breytinga á forritinu.
Ekki er unnt að ljúka forritun breytinganna fyrr en frumvarpið hefur verið samþykkt.
Minnt er á að óvissa um málið er enn nokkur og verður henni ekki eytt að fullu fyrr en frumvarpið hefur verið samþykkt og Ríkisskattstjóri gefið út leiðbeiningar varðandi framkvæmd staðgreiðsluskila samkvæmt nýju lögunum.
- Frekari upplýsingar verða sendar viðskiptavinum þegar þær liggja fyrir.
- Við bendum einnig á þjónustuvefinn þar sem allar upplýsingar um breytingarnar eru aðgengilegar.
- Nánari upplýsingar gefur þjónustuborð Maritech í síma 545-3232
Til baka