22.01.2010
Maritech býður viðskiptavini sína velkomna á „Best of TechEd & Convergence 2010“ ráðstefnuna sem haldin verður dagana 26. -27. janúar n.k. á Hilton Nordica Reykjavík.
Maritech verður með bás á ráðstefnunni og hvetjum ykkur til að líta við og kynna ykkur þær Microsoft lausnir sem í boði eru, ásamt þeim nýjungum í tækniþróun sem verða á árinu.
Ráðstefnan í fyrra heppnaðist með eindæmum vel og búist er við enn fleiri þátttakendum í ár.
Skráningarsíðan er opin. - Skráning
Hér er um mjög metnaðarfulla dagskrá að ræða og það má með sanni segja að sjaldan hafa jafn margir sérfræðingar komið frá Microsoft til Íslands.
Björn Þórhallsson og Stefán Torfi Höskuldsson starfsmenn Maritech verða með fyrirlestur um viðskiptagreind og stjórnendalausnir í Microsoft Dynamics NAV á þriðjudeginum 26. janúar kl. 11, í sal E032.
Sætin á fyrirlestrunum eru takmörkuð svo endilega skráið ykkur sem fyrst.
Fyrirlestur Maritech er undir Dynamics Buisness Solutions á skráningarforminu.
Hægt að skrá sig á fyrirlestra á meðfylgjandi slóð með því að smella á viðeigandi kassa, en hafa þarf í huga að fyrst þarf að vera búið að skrá sig á ráðstefnuna. - Skráning á fyrirlestra
Hlökkum til að sjá ykkur,
Starfsfólk Maritech
Til baka