26.06.2009
Almenna verkfræðistofan hf. hefur valið Maritech sem samstarfsaðila með viðskiptalausnir Microsoft Dynamics NAV og var samningur þess efnis undirritaður í síðustu viku. Nokkrar sérlausnir Maritech verða innleiddar hjá AV og má þar nefna Sérfræðiverkbókhald Maritech og Uppáskriftarkerfi ásamt NAV 5.01.
Almenna verkfræðistofan valdi Maritech þar sem Sérfræðiverkbókhald Maritech hefur mikla yfirburði ásamt því að heildarlausnin hentaði fyrirtækinu sérlega vel. Almenna verkfræðistofan hf. er ein stærsta verkfræðistofa landsins, stofnuð 1971 og erum við stolt af því að bjóða fyrirtækið velkomið í viðskiptavinahóp Maritech. Efla, Verkís ásamt fjölda annarra sambærilegra verkfræðistofa nota einnig Sérfræðiverkbókhald Maritech í dag.
Maritech er söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu. Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1995 og hefur þróast yfir í að vera stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi í dag.
Microsoft Dynamics NAV er áframhaldandi þróun á Navision Financials og Attain sem hafa notið mikillar velgengni um heim allan. Lausnin er sérstaklega hönnuð til að auðvelda vinnuferla í fyrirtækjum í sambandi við fjármálastjórnun, vörustjórnun og rafræn viðskipti. Lausnin uppfyllir þarfir íslenskra fyrirtækja, óháð því hvaða sérkröfur eru gerðar um viðskiptaferla, fjármálastjórn og stjórnun
Til baka