Þrívíddarkort í kerfi Maritech

23.06.2009

 

Það hefur verið haft að leiðarljósi við þróun á Microsoft Dynamics NAV að notendaviðmót sé ávallt einfalt og þægilegt og tileinki sér þær nýjungar sem að gera kerfið enn betra. Í dag er kerfið í sama notendaviðmóti og Outlook sem einfaldar til muna notkun og lestur kerfisins og hefur þessi þróun mælst mjög vel fyrir á meðal notenda NAV.

 

Maritech hefur unnið enn frekar að því að gera kerfið notendavænna og þá með tilliti til þróunar á sérkerfum Maritech. Það nýjasta sem að við höfum verið að setja inn í kerfin hjá okkur er þrívíddarvirkni (virtual globe) virkni. Í dag er viðbótin langt komin í þróun í Samningakerfi Maritech sem og NEMO stjórnendasýn. Þetta er mjög spennandi virkni sem að viðskiptavinir Maritech hafa lofað í hástert og verður skemmtilegt þegar virknin er komin í almenna notkun.

 

Með því að tengja þrívíddarkort við gagnagrunn NAV er hægt að draga fram ýmsar gagnlegar upplýsingar og sjá þær frá nýju sjónarhorni. Hægt er að sjá á einfaldan hátt dreifingu viðskiptamanna, hvaða svæði eru að gefa mest/minnst viðskipti, hvaða svæði eru að gefa mestan hagnað/tap og svo margt fleira. Möguleikarnir eru nær ótakmarkaðir!

 

Mikil eftirvænting er eftir viðbótinni hjá viðskiptavinum okkar og hlökkum við til að geta boðið upp á viðbótina í ýmsum kerfum okkar á næstu misserum. Þróunarsvið Maritech hefur verið sérlega iðið við að kynna sér nýjungar og koma með hugmyndir að tengingum þeirra við NAV og verður fróðlegt að fylgjast með framgangi hugmyndasmíði þeirra í framtíðinni.

 

Sjá myndband á ensku um Samningakerfi Maritech (Pactum) þar sem tengingin er sýnd í lokin. 


Til baka

 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007