NEMO stjórnendasýn

Maritech hefur þróað einstaka stjórnendalausn fyrir Microsoft Dynamics NAV sem við köllum NEMO (NAV Executive Management Overview) . Með NEMO geta stjórnendur tekið púlsinn á rekstrinum hvenær sem er og án milligönguaðila.
Kerfið auðveldar ákvarðanatöku þar sem til dæmis er hægt að sjá með auðveldum hætti hvaða vörur eru að gefa mestan arð, hvert mynstrið í árstíðarsveiflunum er og eins er hægt að sjá hvernig sölumynstur starfsmanna er.


  • Einstök lausn fyrir Microsoft Dynamics NAV
  • Yfirsýn þegar þér hentar
  • Staða lánardrottna og skuldunauta
  • Staða birgða
  • Staða sölu
  • Stöðuyfirlit fyrir komandi misseri
  • NEMO hefur verið innleitt víða um heim
  • NEMO einblöðungur.pdf
  • NEMO bæklingur.pdf


Nú þurfa fyrirtæki ekki að fjárfesta í rándýrum lausnum sem tímafrekt og erfitt getur verið að tengja Microsfot Dynamics NAV til að fá yfirsýn yfir reksturinn. Með NEMO færðu lausn sem sett er upp á 1-2 dögum og stjórnendur geta strax dregið fram þær upplýsingar sem þeir þurfa til réttra ákvarðanatöku.

Sjáðu kynningarmyndband og frekari upplýsingar um NEMO á www.nemo.is.


,,Það er ekkert jafn mikilvægt fyrir stjórnendur en að hafa góða yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins. Ég vil vita hvað er að gefa mér mest, hvar sveiflurnar í sölunni liggja, hvernig hagkvæmast er að stýra innkaupum hverju sinni og fleiri lykilupplýsingar. Það skiptir máli að geta gengið að þessum gögnum hvenær sem er og geta brugðist við breytingum í tíma. Með NEMO get ég gengið að öllum lykilupplýsingum á einum stað, engir milliliðir eða bið, allt aðgengilegt í kunnuglegu umhverfi NAV."

Skúli J. Björnsson
Framkvæmdarstjóri Sportís | Formaður Félags íslenskra stórkaupmanna