Lausnir fyrir verslunarfyrirtæki

Maritech býður Microsoft Dynamics NAV viðskiptalausnir tengdar MerkurPOS verslunarkerfum (POS kassatenging pdf). Um er að ræða staðlaða lausn sem er þegar í notkun hjá fjölda fyrirtækja um land allt. MerkurPOS verslunarkerfið er fyrir verslanir og afgreiðslustaði og er notað hjá verslunum, heildsölum, mötuneytum, veitingastöðum og víðar.

Kerfið er afar hraðvirkt, keyrir á kassanum þannig að leit að vörunúmerum og afgreiðsla gengur ávallt hratt og vel fyrir sig. MerkurPos keyrir sem fyrr segir á kassanum og með tengingu við bakvinnslu Microsoft Dynamics NAV sem tryggir hámarks "uppi-tíma" og öryggi - þó tölvukerfi verði fyrir bilunum er alltaf hægt að selja á kössunum. Kerfið er afar einfalt í notkun og tekur einungis 2-4 tíma fyrir tölvulæst starfsfólk að læra á kerfið.



  • MerkurPOS (pdf):
    • Einfalt í uppsetningu og innleiðingu
    • Fyrirferðalítið í rekstri og viðhaldi
    • Býður uppá öflugar greiningar gagna
    • Uppgjör í lok dags og hvenær sem er
    • Tenging við kreditkort, skanna og handtölvur eru staðlaðar lausnir í boði með hugbúnaðinum
  • Aðrar lausnir og þjónusta fyrir verslunarfyrirtæki:


Einfaldar lausnir


,,Við hófum innleiðingu á MerkurPOS verslunakerfi árið 2005 og hefur það reynst áreiðanlegt og einfalt í notkun. Það er mikilvægt fyrir mig að geta nálgast allar þær upplýsingar úr öllum mínum verslunum frá einum stað. Rauntímagreining gerir mér kleyft að fylgjast með rekstrinum mínútu fyrir mínútu".
Finnur Magnússon, Tiger Ísland ehf.