Um Maritech

Maritech er söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með sérstaka áherslu á ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingu hugbúnaðar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.
Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1995 og hefur þróast yfir í að vera stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi.

Hjá Maritech starfa rúmlega 70 manns og er aðalskrifstofan í Kópavogi ásamt því að vera með glæsilega skrifstofu á Akureyri. Öflugur hópur ráðgjafa, forritara og þjónustudeildar með mikla reynslu, tryggir viðskiptavinum Maritech árangur í rekstri. Sameiginlegt markmið starfsmanna Maritech er að vera vakandi yfir tækifærum og nýjungum til að tryggja fyrsta flokks viðskiptalausnir og þjónustu fyrir viðskiptavini.


Maritech - Hlíðasmára 14, Kópavogi


Maritech hefur meðal annars sérhæft sig í viðskiptahugbúnaði á sviði fjármála, þjónustu, sveitarfélaga, flutninga, heildsölu og verslunar fyrir Microsoft lausnir. Starfsfólk Maritech er stolt af ört vaxandi viðskiptamannalista þess sem sýnir hversu breiðan hóp Maritech þjónustar ásamt því að hann treystir stoðir undir það góða orðspor sem er bæði fyrirtækinu og starfsfólkinu mikilvægt.

Innan Maritech starfar öflug liðsheild sem leitar lausna á hugbúnaði Microsoft með þarfir viðskiptavina sinna að leiðarljósi. Starfsfólk Maritech eru sérfræðingar á sínu sviði og leitast við að veita góða þjónustu og faglega ráðgjöf. Hagkvæmur rekstur fyrirtækja með góða yfirsýn er okkar fag.


 

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009

 

Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2008

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2008

 

Microsoft President Club 2008

 

Samstarfsaðili ársins 2007 - Microsoft Ísland

 

Stærsti söluaðili Microsoft Dynamics NAV á Íslandi 2007

 

Microsoft President Club 2007